Sveit Guðna Kristjánssonar sigurvegari á Þorsteinsmóti í bridge
Sveit Guðna Kristjánssonar sigraði árlegt Þorsteinsmót í bridge sem fór fram í Félagsheimilinu á Blönduósi þann 30. desember sl.
Tíu sveitir tóku þátt í mótinu sem hófst kl. 11 um morguninn og lauk rúmum átta klukkustundum síðar. Samkvæmt vefmiðlinum huni.is var keppnin spennuþrungin frá upphafi til enda en sem fyrr segir var það sveit Guðna Kristjánssonar sem bar sigur úr býtum með 142 stig og hlaut farandbikarinn sem Knútur Berndsen gaf hér árum áður.
Í öðru sæti varð sveit Jóns Arnar Berndsen með 119 stig, með sama sæti og stigafjölda og í fyrra. Í þriðja sætir varð sveit Gunnars Sveinssonar einnig með 119 stig en Jón og félagar unnu innbyrðis viðureign þeirra. Í því fjórða varð sveit Sigríðar Arnardóttur með 117 stig og í því fimmta sveit Suðurleiða með 115 stig.
Sem fyrr var það Stefán Berndsen sem hafði veg og vanda að mótinu.