Sveitarfélagið Skagafjörður gefur út lestrarstefnu fyrir skólafólk

Unnið hefur verið að gerð lestrarstefnu Skagafjarðar sl. tvö ár sem verður kynnt öllu starfsfólki leik-, grunn- og tónlistarskóla á fræðsludegi sem haldinn verður í Miðgarði nk. þriðjudag. Svokölluð læsisteymi, sem í sátu fulltrúar leik-, grunn- og tónlistarskóla, hélt utan um vinnuna undir stjórn Sigurlaugar Rúnar Brynleifsdóttur, deildarstjóra við Grunnskólann austan Vatna.

Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að eintak af stefnunni verði sent inn á öll heimili leik- og grunnskólabarna í Skagafirði, ásamt því sem hún verður aðgengileg öllum á rafrænu formi á heimasíðum skólanna og Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Markmið lestrarstefnu Skagafjarðar eru að efla læsi í tónlistar-, leik- og grunnskólum í Skagafirði, skapa samfellu í læsisnámi barna og byggja ofan á þann grunn sem fyrir er, ásamt því að efla samstarf við heimilin á sviði lestrar.

Lestrarstefnuna má finna HÉR.

Fleiri fréttir