Sveitarfélagið Skagaströnd styrkir nemendur á framhalds- og háskólastigi
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur tekið ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi að fjárhæð 20 þúsund kr. fyrir skólaárið 2016-2017. Styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.
Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 25. apríl 2017.
Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.
Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk.
Nánari upplýsingar um styrkina eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp þar sem finna má umsóknareyðublöð.
Reglur um styrkina má finna hér.
Umsókn um styrk má finna hér.