Sveitarfélög fái arðinn af fiskveiðiauðlindinni

Mælt var fyrir frumvarpi Hreyfingarinnar um stjórn fiskveiða á Alþingi í gær.  Markmið frumvarpsins er að breyta skipulagi fiskveiðistjórnunar og sölu sjávarafla.  Þannig verði tryggð ríkari aðkoma sveitarfélaga að arðinum af aflaheimildum og stuðlað að eflingu sjávarbyggða.

Ef frumvarpið nær fram að ganga munu tekjur sveitarfélaga aukast verulega samkvæmt tilkynningu frá Hreyfingunni sem og að fari allur afli á markað mætti gera ráð fyrir að leiguverð muni lækka um allt að helming. „Ef miðað er við helmingslækkun leiguverðs fyrir þorskígildistonn á markaði í dag, sem er í kringum 318 kr. per kg., en yrði 159 kr. per kg., myndu tekjur Akureyrarbæjar aukast um 3,7 milljarða, Ísafjarðarbæjar um 3,3 milljarða, Norðurþings um 1,5 milljarða, Reykjanesbæjar um 1,9 milljarða og Vestmannaeyja um 4,1 milljarða á ári.“

Með sömu útreikningum er hægt að finna tekjur sem sveitarféögin á Norðurlandi vestra myndu fá og lítur það svona út:

Húnaþing vestra: 135 milljónir ári.
Skagafjörður: 979 milljónir á ári.
Skagaströnd 829 milljónir á ári.
Blönduós: 343 milljónir á ári.

Ljóst má vera samkvæmt þessu að um gríðarlega hagsmuni er að ræða fyrir sjávarbyggðir um allt land þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir að færa þeim aftur heimildir byggðar á veiðireynslu þeirra og að arðurinn af þeirri auðlind renni beint til sjávarbyggðanna.

Með frumvarpinu, segir í tilkynningu Hreyfingarinnar, er stefnt að því að hvert sveitarfélag á Íslandi fái forræði yfir veiðum á samsvarandi hluta nytjastofna á Íslandsmiðum og nemur samanlagðri aflahlutdeild þeirra fiskiskipa sem skráð voru í viðkomandi sveitarfélagi fyrir gildistöku laga um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990, sem meðal annars fólu í sér heimild til kvótaframsals. Að auki stefnir frumvarpið að aðskilnaði veiða og vinnslu og fjárhagslegri endurskipulagningu þeirra útgerðarfyrirtækja  á Íslandi sem hafa skuldsett sig vegna kvótakaupa. Loks stefna lögin að eflingu umhverfisvænna handfæraveiða en þess má geta að kolefnisspor veidds togaraþorsks er 5,15 kg. af koltvísýringsígildi en kolefnisspor línuveidds þorsks er aðeins 1,58 kg.

Frumvarpið má nálgast HÉR

Fleiri fréttir