Sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi vestra funduðu með þingmönnum

Í síðustu viku var haldinn þingmannafundur á Sauðárkróki þar sem sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi vestra fengu tækifæri til að ræða við þingmenn kjördæmisins um málefni svæðisins en almennt hafa heimamenn áhyggjur af stöðu landshlutans. Áhyggjur manna beinast helst að boðuðum niðurskurði til heilbrigðismála  en samgöngumál voru einnig rædd.

 

Bjarni Jónsson formaður byggðaráðs Skagafjarðar segir að skipulagsmálin hafi  einnig verið í brennidepli en aðalskipulag í Skagafirði og Húnavatnssýslum hefur enn ekki verið afgreitt úr ráðuneyti vegna afskipta Vegagerðarinnar um veglínu um sýslurnar.

Þá voru menntamálin rædd en sífellt þarf að vera vakandi yfir þeim hlutum þar sem Hólaskóli og Fjölbrautaskólinn gegna mikilvægu hlutverki fyrir íbúa Norðurlands vestra.

-Það sem hæst ber eftir fundinn að mínu mati er sú ákvörðun sem tekin var að settur verði á fót starfshópur heimamanna og stjórnvalda til að fara yfir og bæta stöðu landshlutans og það var ágætlega í það tekið af þingmönnum. Þeir munu þá fylgja því eftir gagnvart stjórnvöldum, segir Bjarni.

Mikil samstaða er meðal sveitarstjórnamanna á Norðurlandi vestra um málefni svæðisins að mati Bjarna enda um sameiginlega hagsmuni að ræða og aðspurður segir hann að menn gangi í takt í þessari varnarbaráttu í landshlutanum.

Fleiri fréttir