Sveitarstjórnarmenn í Austur Húnavatnssýslu vilja fund með forsætisráðherra
Á sameiginlegum fundi sveitarstjórnarmanna í Austur Húnavatnssýslu sem haldinn var í Dalsmynni 7. febrúar 2012 var samþykkt ályktun þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að svara ákalli stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um aðgerðir í atvinnu- og byggðamálum.
„Stjórn SSNV hefur ítrekað óskað eftir fundi með forsætisráðherra án árangurs til að ræða mjög erfiða stöðu byggða á Norðurlandi vestra og leggja fram tillögur til að finna lausnir á þeim vanda. Á þeim fundi hugðist stjórnin skýra hvernig hún telur ríkisvaldið geta komið að viðspyrnu og endurreisn og hamlað þeirri öfugþróun í byggðamálum sem hefur átt sér stað á undanförnum árum,“ segir m.a. í ályktuninni.
Mikil óánægja er með fálæti þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar meðal frammámanna á Norðurlandi vestra en Bjarni Jónsson formaður stjórnar SSNV hefur gagnrýnt það m.a. í Feyki. Á Feyki.is fyrr í dag sagði Bjarni ekki sætta sig við annað en fá fund með forkólfum ríkisstjórnarinnar en í boði var fundur með starfsmönnum ráðuneytisins. Hann segir að fólk ætlast til þess að við það sé talað en ekki sýnt fálæti. Því hafi verið ítrekuð krafan um fund með stjórnvöldum.