Sveitasæla á laugardag
Skagfirskir bændur og Reiðhöllin Svaðastaðir við Sauðárkrók blása til landbúnaðarsýningar og bændahátíðar í Skagafirði næstkomandi laugardag, þann 20. ágúst nk.
Þar mun margt fróðlegt og skemmtilegt bera fyrir augu manna og má m.a. nefna sveitamarkað, kynningu á fyrirtækjum tengdum landbúnaði, fróðleik um fornar vinnsluaðferðir til sveita, smalahundasýningu, hrútasýningu, kálfasýningu, vélasýningu skagfirskra bænda og vélasala, húsdýragarð, leiktæki fyrir börn, hæfileikakeppni gröfumannsins, keppni í dráttarvélaakstri og bændafitness, auk þess sem öllum gestum verður boðið í grillveislu þar sem skagfirskir skemmtikraftar láta ljós sitt skína.
Sýningin hefst kl. 10.00 á laugardagsmorgunn og stendur fram á kvöld. Aðgangur á sýninguna er ókeypis.
Það er því óhætt að hvetja sem flesta til þess að taka daginn frá.
Þá gefst gestum jafnframt tækifæri til að sækja skagfirska bændur heim um næstu helgi en á sunnudaginn geta gestir heimsótt opin bú í Skagafirði á milli kl. 11-17.00. Syðra-Skörðugil á Langholti verður með opið hrossaræktarbú, hesthús og fjárhús, Hamarsbúið í Hegranesi verður með opið fjós og Syðra-Skörðugil á Langholti býður gesti velkomna að skoða loðdýrabúið.