Vinnustaðaklasinn í frystihúsinu á Hofsósi hlaut styrk

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað rúmum 27 milljónum kr. í styrki til 14 verkefna til að styðja við uppbyggingu vinnustaðaklasa á landsbyggðinni. Styrkirnir eru veittir á grundvelli byggðaáætlunar. Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytileika starfa á landsbyggðinni. Eitt verkefni á Norðurlandi vestra hlaut styrk en vinnustaðaklasinn í gamla frystihúsinu á Hofsósi fékk úthlutað fjórum milljónum í flokknum Ný uppbygging á miðlungssvæði.

Þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir sérstaklega til að efla vinnustaðaklasa á landsbyggðinni, en í mars sl. úthlutaði ráðherra fimmtíu milljónum til 26 vinnustaðaklasa.

Vinnustaðaklasi er skilgreindur sem skipulagt og samnýtt vinnurými þar sem fjölbreytt vinnuaðstaða stendur til boða fyrir fleiri en einn vinnustað eða starfsstöðvar vinnustaða. Styrkhæfir voru aðilar sem reka vinnustaðaklasa utan höfuðborgarsvæðisins.

Styrkir skiptist í ólíka flokka eftir svæðum, íbúafjölda og eftir því hversu rótgróin starfsemin er. Í forgangi voru minni staðir þar sem atvinnulíf er einhæft, svæði sem hafa orðið fyrir verulegum áföllum í atvinnulífi eða svæði á fámennum vinnusóknarsvæðum.

Sjá má lista yfir þau verkefni sem hlutu styrki með því að smella hér >

Heimild: Stjórnarráðið.is

 

 

 

Fleiri fréttir