Sviðamessa Lionsklúbbs Blönduóss

Hin árlega sviðamessa Lionsklúbbs Blönduóss verður haldin að Hólahvarfi í Langadal, veiðihúsi Blöndu, föstudaginn 8. nóvember næstkomandi klukkan 20:00. Allir karlar bæði innan og utan klúbbsins eru velkomnir á skemmtunina. Auk veitinga verður boðið upp létta dagskrá og verður hún nánar auglýst í næsta tölublaði Gluggans.

Tilkynna þarf þátttöku fyrir miðvikudaginn 6. nóv. til Sigurjóns, sími 862-8603 eða Alla 892-2439. Miðaverð er 4000 krónur. Rútuferð verður frá Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 19:30.

Fleiri fréttir