Sýna kvenréttindum stuðning í verki á Blönduósi
Í tilefni 100 ára kosningaafmæli kvenna á morgun 19. júní eru íbúar Blönduósbæjar hvattir til að mæta fyrir utan stjórnsýsluhúsið kl. 12:15. Þaðan verður gengið um bæinn og endað við Ömmukaffi. „Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og sýna kvenréttindum stuðning í verki,“ segir á Húna.is.
Í tilkynningu frá Blönduósbæ er vakin athygli á því að starfsmenn sveitarfélagsins, sem hafa starfsskyldu á morgun, fá frí frá kl. 12:00 að hádegi, skv. samþykkt byggðarráðs Blönduósbæjar.
