Sýndu afrakstur sinn í Bílskúrsgalleríi
Listamenn Listamiðstöðvar Textílseturs Íslands sem dvöldu í Kvennaskólanum á Blönduósi í apríl mánuði héldu listasýningu í Bílskúrsgalleríi þriðjudaginn 26. apríl sl. Sagt er frá sýningunni á Húnahorninu og þar er einnig að finna fleiri myndir sem teknar voru við þetta tilefni.
Það voru þau Vanessa Falle, Richard McVetis, Marie O’Connor, Celia Pym, Sofia Salazar, Ginni Seehagel og Cornelia Theimer Gardella sem sýndu afrakstur vinnu sinnar á sýningunni. Var hún vel sótt og vöktu verk listamannanna verðskuldaða hrifningu.
Á Húnahorninu segir ennfremur að þessar mánaðarlegu sýningar séu alltaf að verða vinsælli hjá bæjarbúum sem séu búnir að uppgötva þessa skemmtilegu hefð listamannanna. Nú um mánaðamótin mættu svo nýir listamenn á svæðið og verður forvitnilegt að sjá afrakstur þeirra þegar þar að kemur.