Sýndu hvað í þér býr!
Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Blönduósi í húsi Samstöðu 31. Mars n.k. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00. Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“
Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum.
Námskeiðsgjald er 5000 krónur. Farið er í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, þ.e. að taka til máls, framkomu, ræðuflutning, raddbeitingu, skipan ræðu o.fl. Einnig er kennt ýmislegt sem við kemur fundahöldum eins og fundareglur, boðun funda, fundaskipan, dagskrá funda, umræður, meðferð tillagna, kosningar
o.fl.. Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið hjá Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is
