Syngjandi konur

Enn á ný blæs Freyjukórinn í Borgarnesi til söngbúða með Kristjönu Stefánsdóttur, djass söngkonu, þar sem öllum syngjandi konum velkomið að taka þátt.

Söngbúðirnar verða í Hjálmakletti í Borgarnesi helgina 1.-2. mars 2014. Þátttakendur munu læra og æfa söng undir stjórn Kristjönu Stefánsdóttur. Zsuzsanna Budai mun vera hennar hægri hönd við að þjálfa hópinn. Tónlistarmenn sem munu styðja við sönginn eru þeir; Sigþór Kristjánsson á trommur, Karl Olgeirsson á píanó, Sigurður Jakobsson á bassa og Einar Þór Jóhannsson á gítar.

Síðan er ætlunin að halda ferna tónleika. Þeir fyrstu verða 2. mars í Hjálmakletti. Næstu tónleikar verða í Grundarfjarðarkirkju 5. mars kl. 20 og í Fríkirkjunni í Reykjavík laugardaginn 8. mars kl. 16. Ætlunin er að vera með blönduð lög – bæði íslensk og erlend.

Undirbúningur, skipulag og stjórn verkefnisins er í höndum Freyjukórs. Fjármögnun er í gegnum þátttökugjöld. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef kórsins.

 

 

Fleiri fréttir