Sýningaropnun í Textílsetrinu

Événements non-spontanés er heiti á sýningu sem opnuð verður í Textílsetrinu klukkan 18:30 í dag. Sýningin er á verkum Katarin Laruelle og kærasta hennar Manuel Mineau, en þau hafa unnið að sýningunni á meðan dvöl þeirra hefur staðið í Textílsetrinu.

Á heimasíðu Þekkingarsetursins á Blönduósi segir að Manuel hafi komið í byrjun febrúar og hefur unnið að bókbindingu í Héraðsbókasafninu og auk þess býr hann til bækur. Katarin er veflistakona og hefur dvalið í Textilsetrinu frá því í byrjun janúar. Hún hefur verið í starfsnámi í Textílsetrinu og hefur unnið að nýrri heimasíðu stofnunarinnar og aðstoðað framkvæmdastjóra við að koma á fót Listamiðstöð fyrir textíllistafólk. Þar fyrir utan hefur hún unnið að sinni veflist sem hún mun sýna á sýningunni sem öllum verður opin á fyrstu hæð Kvennaskólans.

Sýningin verður opin til 6. apríl næstkomandi á milli klukkan 13 og 18 alla dagana nema opnunardaginn. Listamennirnir verða til staðar á meðan sýningu stendur. Fólk er hvatt til að líta við og er hjartanlega velkomið.

Fleiri fréttir