Tækifæri í fjárfestingu í atvinnulífinu á Norðurlandi vestra

Tækifæri boðar til fundar um fjárfestingar í fyrirtækjum á Norðurlandi.
Tækifæri boðar til fundar um fjárfestingar í fyrirtækjum á Norðurlandi.

Kynningarfundur með fjárfestingafélaginu Tækifæri hf. verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl næstkomandi klukkan 12 á Kaffi Krók. Boðið verður upp á súpu og brauð.

Á fundinum mun Jón Steindór Árnason, framkvæmdastjóri Tækifæris, kynna starfsemi félagsins og fjárfestingar, auk þess að fara yfir möguleika í nýjum fjárfestingum. Samskonar fundir eru fyrirhugaðir á næstunni á Blönduósi og Hvammstanga.

Tækifæri hf. er fjárfestingafélag sem fjárfestir í nýsköpun á Norðurlandi. Félagið var stofnað árið 1999 og hefur fjárfest í yfir 50 fyrirtækjum á starfstíma sínum. Starfssvæðið er eins og áður segir Norðurland, frá Hrútafirði í vestri að Langanesi í austri.  Hluthafar í Tækifæri eru í dag ríflega 30.

"Verkefnin eru orðin um 50 sem Tækifæri hefur komð að frá stofnun og eru þau af ýmsum stærðum og gerðum.  Hluti þeirra hefur verið á Norðvesturlandi, en undanfarin misseri höfum við lítið heyrt af verkefnum af Norðvesturlandi.  Það er eitthvað sem við viljum gjarnan breyta og er þessi fundur liður í því að minna á okkur og hvetja aðila með góðar hugmyndir til að heyra í Tækifæri og sjá hvort að samstarfsgrundvöllur sé fyrir hendi," sagði Jón Steindór í samtalið við Feyki í dag. Meðal núverandi fjárfestinga Tækifæris má t.d. nefna Jarðböðin við Mývatn og N4.

 

Fleiri fréttir