Tæplega hundrað skráðir á Svínavatn 2015

Ísmótið Svínavatn 2015 verður haldið laugardaginn 28. febrúar og hefst stundvíslega klukkan 11 á B-flokki, síðan hefst A-flokkur og endað er á tölti. Úrslit verða riðin strax á eftir hverri grein.

Í fréttatilkynningu frá aðstandendum mótsins kemur fram að ísinn sé góður og skráningar séu tæplega hundrað. Ráslistar, aðrar upplýsingar og úrslit, þegar þar að kemur, eru birtar á heimasíðu mótsins is-landsmot.is. Gott hljóðkerfi verður á staðnum og útvarpsútsending þar sem einkunnir verða kynntar jafnóðum.

Einnig verður veitingasala á staðnum þar sem hægt er að kaupa heita drykki, samlokur, pylsur o.fl. og er posi á staðnum. Einnig verður fáanleg vönduð skrá með nánari upplýsingum um mótið. Vegna góðs stuðnings styrktaraðila mótsins er aðgangur ókeypis og eru allir hvattir til að koma og njóta þessarar mestu gæðingaveislu ársins á svæðinu.

Fleiri fréttir