Talsvert minni skjálftivirkni í nótt

Óvissustig almannavarna, sem lýst var yfir í fyrradag vegna jarðskjálftahrinunnar úti fyrir Norðurlandi, er enn í gildi. Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands var skjálftivirknin talsvert minni í nótt en síðustu daga.

Samkvæmt vef Veðurstofunnar hefur nokkur virkni verið á upptakasvæði 5,6 skjálftans um sl. helgi en nánast engin virkni hefur verið NNV við Gjögurtá í nótt.

„Það er þó alls ekki hægt að slá því föstu að hrinunni sé að ljúka og möguleiki á stórum sjálfta í kjölfar hrinunnar er enn til staða og rétt að gera ráð fyrir þeim möguleika áfram þó virknin detti niður,“ segir loks á vefsíðunni.

Stærstu skjálftar síðustu 48 klst

Stærð

Tími

Gæði

Staður

3,8 25. okt. 03:41:58 44,0 22,9 km NNA af Siglufirði
3,6 25. okt. 03:42:02 Yfirfarinn 20,3 km NNA af Siglufirði
3,2 25. okt. 07:47:09 Yfirfarinn 24,3 km NNA af Siglufirði

Fleiri fréttir