Tap á rekstri Félagsheimilisins á Blönduósi

Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar sem haldinn var þann 8. maí síðastliðinn kynnti bæjarstjóri ársreikning Félagsheimilisins á Blönduósi ehf. Samkvæmt fundargerð varð tap á rekstri félagsins á árinu 2013 að fjárhæð 2.727 þús. kr. Bókfært eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 42.355 þús. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

Hlutafé félagsins nam í árslok 40.600 þús. kr. sem er óbreytt frá fyrra ári.

Bæjarráð samþykkir ársreikninginn

Fleiri fréttir