Tekið til hendinni á Skagaströnd
„Nú vorar sem óðast og senn líður að sjómannadegi. Það er því kominn tími til að taka til hendinni og þrífa eftir veturinn,“ segir í tilkynningu frá sveitarstjóra Svf. Skagastrandar sem skorar á íbúa sveitarfélagsins að taka til hendinni laugardaginn 30. maí, hreinsa bæði hjá sér og sínu nánasta umhverfi.
Endurvinnslustöðin verður opin kl 13.00 -17.00 og ekkert gjald tekið fyrir þann úrgang sem berst þennan dag.
„Fulltrúar í sveitarstjórn munu taka á móti þeim sem koma á endurvinnslustöðina kl. 15:00-17:00 og bjóða upp á grillaðar pylsur eða annað góðgæti,“ segir á vefnum.
Þeir sem ekki hafa búnað til flutninga geta óskað eftir kerruþjónustu hjá áhaldahúsi í síma 774 5427.
Loks segir að haldinn verður íbúafundur um umhverfismál mánudaginn 1. júní og að hann verði auglýstur sérstaklega síðar.