Tekjur vaxa um rúmar 47 milljónir hjá Blönduósbæ
Fjárhagsáætlun Blönduósbæjar fyrir árið 2013 var lögð fram til síðari umræðu á fundi Bæjarstjórnar þann 11. des. sl. og spunnust miklar umræður um hana. Samkvæmt bókun munu tekjur vaxa um rúmar 47 milljónir frá fjárhagsáætlun 2012 en gjöld um 46 milljónir. Niðurstaða fyrir fjármagnsliði er jákvæð um tæpar 39 milljónir sem er svipuð niðurstaða og áætlun 2012 gerir ráð fyrir.
Eftirfarandi álagningastofnar fasteignagjalda og útsvarshlutfall sveitarfélagsins voru samþykktir á fundinum:
Álagning fasteignaskatts: A-hluti fasteignaskatts (íbúðarhúsnæði) er 0,43% af hús- og lóðarmati A-hluti fasteignaskatts (hesthús og gripahús í þéttbýli) er 0,43% af hús- og lóðarmati B-hluti fasteignaskatts (opinbert húsnæði) er 1,32% af hús- og lóðarmati C-hluti fasteignaskatts (atvinnuhúsnæði og annað en að neðan greinir) er 1,55% af hús- og lóðarmati
Vatnsgjald á A-hluta, B-hluta og C-hluta fasteigna (íbúðar-, opinbert- og atvinnuhúsnæði) er 0,30% af hús- og lóðarmati
Holræsagjald á A-hluta, B-hluta og C-hluta fasteigna (íbúðar-, opinbert- og atvinnuhúsnæði) er 0,275% af hús- og lóðarmati
Lóðarleiga fyrir A-hluta, B-hluta og C-hluta fasteigna (íbúar-, opinbert- og atvinnuhúsnæði) er 2,0% af fasteignamati lóðar, fyrir ræktunarlóðir 0,55 kr. á fm að lágmarki 7.260 kr.
Sorpgjöld:
- Innheimt á hverja íbúð vegna sorphirðu: kr. 18.700,-
- Innheimt á hverja íbúð vegna sorpeyðingar: kr. 18.700,-
- Innheimt á sumarhús, hesthús og gripahús í þéttbýli vegna sorpeyðingar: kr. 18.700,-
Útsvar: Útsvarshlutfall 14,48%
Að þessu loknu var fjárhagsáætlun 2013 og gjaldskrá bæjarins borin undir atkvæði og samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum.