Tekur á að finna sífellt til

Blönduósingurinn Erla Guðrún Gísladóttir þjáist af svokallaðri sóragigt og hefur sjúkdómurinn haft mjög hamlandi áhrif á líf hennar. Hún veikist fyrst um mitt ár 2004 og lýsir hún fyrstu einkennum gigtarinnar sem smá eymslum í höndum og beinhimnubólgu.

„Fljótlega ágerast verkirnir og ég fer að eiga mjög erfitt með gang auk þess sem fleiri liðir verða aumir. Í september sama ár er ég eiginlega hætt að geta hreyft mig,“ segir Erla Guðrún og bætir við að einföldustu verk, líkt og hárburstun og að ganga um íbúðina, hafi verið henni um of.

Erla Guðrún er í opnuviðtali  Feykis þessa vikuna en hún býr nú í Bandaríkjunum, ásamt eiginmanni sínum, Finni Dellsén og dóttur, Katrínu Önnu.

 

Fleiri fréttir