Telur ólíklegt að RARIK samþykki lagningu hitaveitu

Haukur Ásgeirsson deildarstjóri hitaveitna hjá RARIK telur ólíklegt að framkvæmd um lagningu hitaveitu frá Reykjum að Köldukinn í Húnavatnshreppi yrði samþykkt af hálfu RARIK vegna mikils stofnkostnaðar og sóunar í kerfinu þar sem 2/3 af vatninu fer til spillis. Þetta kom fram á fundi Hreppsnefndar Húnavatnshrepps þann 22. ágúst sl.

Húnavatnshreppur hafði lagt fram erindi á sameiginlegum fundi þann 13. mars sl. þar sem m.a. voru kannaðir möguleikar á að leggja hitaveitulögn þannig að síðustu bæir í gamla Torfalækjarhreppi ásamt öðrum bæjum á þeirri leið fengju heitt vatn.

„Við sameiningu hreppanna lagði Torfalækjahreppur til að 30 milljónir af því fjármagni sem lagt var til hreppanna, yrði nýtt í lagningu heitavatns á þá bæi sem eftir voru í gamla hreppnum, ásamt þeim bæjum sem á leiðinni verða.Við þessi tímamót er Hreppsnefnd nauðsynlegt að Húnavatnshreppur óski eftir því að það sé kannað hvort ekki sé hægt að ganga í það mál núna þegar endurbygging heitavatnslagnarinnar fer fram,“ segir í fundargerð frá 7. mars 2012.

Málið var til umfjöllunar á fundi hreppsnefndar þann 22. ágúst sl. og mætti Haukur þangað til fundar og kynnti kostnaðaráætlun hitaveitu frá Reykjum að Köldukinn (alls sjö bæir), þar sem gert er ráð fyrir 12 km., stofnlögn og 2 km lögn í heimæðar.

„Gert er ráð fyrir að notkun á hverjum bæ verði 5 ltr á mín. Til að halda uppi 50°C hita í endastöð þá er gert ráð fyrir 58 ltr. úthlaupi (blæðingu). Setja þarf upp 3 þrýstiskerpistöðvar á lögninni. Heildarkostnaður án vsk er áætlaður rúmar 74 millj. kr.,“ sagði Haukur á fundinum en allir útreikningar voru miðaðir við 73°C heitt vatn úr borholu.

Eins og fram kom hér að ofan telur Haukur vegna mikils stofnkostnaðar og sóunar í kerfinu þar sem 2/3 af vatninu fer til spillis, ekki líklegt að þessi framkvæmd yrði samþykkt af hálfu RARIK.

Í erindi Húnavatnshrepps var jafnframt kannað með aðgang sveitarfélagsins og íbúa þess að ljósleiðara sem verið er að leggja með heitavatnslögn frá Reykjum í Húnavatnshreppi til Skagastrandar. Þær viðræður eru ennþá í gangi, samkvæmt fundargerð.

Fleiri fréttir