Telur stærri sameiningu sveitarfélaga raunhæfari kost

Hreppsnefnd Húnavatnshrepps vill skoða sameiningu allra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Þetta kom fram á fundi Hreppsnefndar þann 16. janúar sl.

Bæjarstjórn Blönduósbæjar sendi hreppsnefnd Húnavatnshrepps erindi nýlega og óskaði eftir að saman yrðu skoðaðir kostir þess og gallar að sameina sveitarfélögin. Hreppsnefnd Húnavatnshrepps telur raunhæfari valkost að skoða stærri sameiningu, til dæmis sameiningu allra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu, þ.e. Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd.

Þóra Sverrisdóttir, oddviti Húnavatnahrepps, sagði í samtali við Rúv.is að sveitarfélögin starfi nú þegar saman um ýmis mál í byggðasamlögum. Eigi skilvirkni að aukast breytti sameining tveggja sveitarfélaga þar litlu.

„Vegna þess að við teljum að það þurfi að stíga stærra skref ef farið verður að sameina sveitarfélög hérna á þessu svæði. Þannig að við erum ekkert að útiloka sameiningu við Blönduósbæ, sem slíkan, en við viljum þá að það sé á stærri grunni,“ sagði Þóra við Rúv.is.

Undir þetta tekur Ágúst Þór Bragason, forseti bæjarstjórnar á Blönduósi. Þóra segist jafnvel sjá fyrir sér sameiningu bæði Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu í eitt sveitarfélag. Hún bendir á að aðstæður sveitarfélaga séu orðnar þannig að þörf sé á stærri og sterkari einingum og því sé full ástæða til að skoða þetta frekar.

„Ef þú horfir til dæmis á Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu, þá eru það um 3.000 manns sem búa hér í Húnavatnssýslunum. Bara svona sem dæmi,“ segir Þóra.

Fleiri fréttir