Tengill á Blönduósi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
09.02.2011
kl. 15.14
Um síðustu áramót hætti Rafþjónusta HP ehf. á Blönduósi starfsemi og við henni tók Tengill ehf. Blönduósi. Samkvæmt tilkynningu frá Tengli munu sömu starfsmenn vinna hjá nýjum rekstraraðilum og veita sömu þjónustu.
Tengill ehf. er öflugt þjónustufyrirtæki í raf- og tölvuþjónustu á Norðurlandi með höfuðstöðvar á Sauðárkróki og er Tengill Blönduósi partur af þeirri heild.
