Tesla opnar ofurhleðslustöð við Staðarskála í næstu viku

Teslubíll við nýja ofurhleðslustöð við Staðarskála í Hrútafirði. MYND AF MBL.IS
Teslubíll við nýja ofurhleðslustöð við Staðarskála í Hrútafirði. MYND AF MBL.IS

Mogginn segir frá því að raf­bíla­fram­leiðand­inn Tesla muni í næstu viku opna nýja of­ur­hleðslu­stöð fyr­ir viðskipta­vini sína við Staðarskála í Hrútaf­irði. Alls verða átta hlöður á stöðinni en afl þeirra er 250 kW en það er fimm­falt það sem fyrstu hraðhleðslu­stöðvarn­ar sem sett­ar voru upp hér á landi gátu annað.

Þá eru hlöður Tesla tæp­lega 70% afl­meiri en aðrar hlöður sem önn­ur fyr­ir­tæki eru að setja upp hér á landi með stuðningi Orku­sjóðs. Tesla fær ekki greiðslur úr rík­is­sjóði í upp­bygg­ing­ar­fer­ilnu.

Í frétt ViðskiptaMoggans er haft eftir Ole Gudbrann Hem­p­el, sem stýr­ir upp­bygg­ingu of­ur­hleðslu­stöðvanna á Norður­lönd­um, að fyr­ir­tækið stefni á upp­bygg­ingu af þessu tagi á Ak­ur­eyri, Eg­ils­stöðum, Höfn í Hornafirði, á Kirkju­bæj­arklaustri og svæðinu nærri Sel­fossi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir