Textíldagur í Kvennaskólanum
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
20.05.2014
kl. 15.33
Laugardaginn 24. maí næstkomandi verður opið hús á textíldegi í Kvennaskólanum á Blönduósi frá klukkan 12 til 16. Þar verður hægt að fræðast um Textílsetur Íslands og um Þekkingarsetrið á Blönduósi.
Textíllistamennirnir sem dvelja í listamiðstöðinni um þessar mundir verða á svæðinu en það eru þær Judy Ann Moule frá Ástralíu, Lz Pead frá Kanada og Lisbeth Tolstrup frá Danmörku.
Í tilkynningu frá Textílsetrinu eru allir boðnir hjartanlega velkomnir og kaffi verður á könnunni.