TextílLab auglýsir eftir verkefnastjóra

Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir öflugum aðila í nýtt og spennandi starf við uppbyggingu TextílLabs á Blönduósi. Um er að ræða einstakt tækifæri til að móta og þróa nýtt starf þar sem fléttast saman aldagömul textílhefð okkar Íslendinga og fjórða iðnbyltingin.

Um er að ræða 50-100% stöðugildi. Verkefnisstjórinn mun halda utan um daglega starfsemi, svo sem opinn tíma fyrir almenning, viðhald og þrif á tæknibúnaði, umsjón með húsnæði, skipulag á námskeiðum og móttöku hópa og einstaklinga.

Textílmiðstöð Íslands sem staðsett er á Blönduósi hefur nýlega sett upp stafræna smiðju sem er sérhæfð í rannsóknum og framleiðslu á ýmiskonar textíl tengdum verkefnum. Uppbygging smiðjunnar hlaut styrk úr Innviðasjóði og verkefnið er unnið í samstarfi við Evrópuverkefnið Centrinno, samstarfsverkefni 9 evrópskra borga með það markmið að endurvekja textíliðnað í Evrópu. Jafnframt hlaut uppbygging TextílLabs og TextílKlasa nýverið styrk úr Lóu - Nýsköpunarstyrk á landsbyggðinni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Tekur á móti einstaklingum og hópum og kynnir möguleika smiðjunnar
  • Leiðbeinir notendum og veitir tæknilega leiðsögn
  • Tekur virkan þátt í að aðstoða frumkvöðla og sprotafyrirtæki í textíl nýsköpun
  • Heldur utan um og framfylgir viðhaldi og hreinlæti á tækjabúnaði
  • Heldur utan um skráningar, heimsóknir og önnur töluleg gögn
  • Annast kennslu á tækjabúnað og heldur reglulega námskeið
  • Tekur þátt í gerð og þróun námsefnis og námskeiða
  • Tekur þátt í öðrum tilfallandi verkefnum hjá Textílmiðstöðinni.

Hæfniskröfur

  • Brennandi áhugi á því að móta sitt starf með tilliti til fjórðu iðnbyltingar í tengslum við textíl
  • Iðn- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Þekking á hönnunarforritum tengd stafrænni tækni kostur
  • 2D og 3D hönnunar forrit, myndvinnsla ofl.
  • Þekking á framleiðsluferlum textíls kostur
  • Reynsla af notkun FabLab kostur
  • Lipurð í samskiptum og þjónustulund
  • Starfið kemur til með að gera mikla kröfu á sjálfstæði og frumkvæði

 

Umsóknarfrestur er til 10 ágúst og nánari upplýsingar veitir Elsa Arnardóttir í síma 694 1881, netfang;elsa@textilmidstod.is.

 /fréttatilkynning

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir