Textíllistamiðstöð á Blönduósi leitar eftir starfsmanni
Leitað er að jákvæðum, hugmyndaríkum einstaklingi til að takast á við spennandi verkefni sem er í uppbyggingu hjá Textíllistamiðstöð í Kvennaskólanum á Blönduósi. Sagt er í tilkynningu að nauðsynlegt sé að viðkomandi sé fær í mannlegum samskiptum, hafi skipulagshæfileika og geti unnið sjálfstætt. Um er að ræða 50% starf en stefnt er að því að auka það í 100% þegar fram í sækir. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og ætli sér að búa á svæðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Bakgrunnur í listum og/eða hönnun
• Góð almenna menntun
• Góð ensku- og íslenskukunnátta bæði í tali og rituðu máli
Meðal verkefna eru:
• Sjá um bréfaskipti og skráningar fyrir listamiðstöðina
• Sjá um heimasíðu og facebókarsíðu
• Kynna og markaðssetja listamiðstöðina
• Taka á móti listamönnum og aðstoða þá á meðan þeir
dvelja í listamiðstöðinni
• Undirbúa verkefni/sýningar og sækja um styrki
• Efla samstarf við skóla og aðrar listamiðstöðvar
Umsóknarfrestur er til 29. nóvember 2013 Umsóknir skulu berast til Textílseturs Íslands á Blönduósi, Árbraut 31