Þæfingsfærð á Þverárfjallsvegi og Siglufjarðarvegi
Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru víðast hvar á Norðurlandi. Þæfingsfærð er á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi milli Hofsóss og Ketiláss en þar er unnið að hreinsun. Vaxandi suðaustanátt er á Ströndum og Norðurlandi vestra með slyddu síðdegis.
Sunnan og síðar suðvestan 15-20 m/s og rigning undir kvöld, en skúrir um miðnætti. Hlýnandi, hiti 2 til 5 stig í kvöld. Lægir undir morgun með éljum og kólnar aftur.
Vaxandi suðaustanátt með slyddu síðdegis. Sunnan og síðar suðvestan 15-20 m/s og rigning undir kvöld, en skúrir um miðnætti. Hlýnandi, hiti 2 til 5 stig í kvöld. Lægir undir morgun með éljum og kólnar aftur.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Suðvestlæg átt, 13-20, hvassast NV-til fyrripartinn, en SA-til seinnipartinn. Lítilsháttar úrkoma við suður og vesturströndina í fyrstu, bjartviðri NA-til, dálítil væta SA-lands undir kvöld, en annars þurrt. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn.
Á miðvikudag:
Suðlæg átt, 8-15 m/s. Rigning víða um land en úrkomulítið NA-til. Hiti 2 til 8 stig, svalast NV-til.
Á fimmtudag:
Vestlæg átt, 5-13 m/s. Slydda eða rigning í fyrstu en síðan él. Úrkomulítið SA-lands eftir hádegi. Líkur á snjókomu SV-til seint um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir lægðagang með úrkomu í flestum landshlutum og frystir og hlánar á víxl.