Þættir Egils Helgasonar um vesturfara
Sjónvarpið hóf á sunnudaginn sýning á þáttaröð Egils Helgasonar, Vesturfarar. Í þessari þáttaröð fer Egill Helgason á Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjum og skoðar mannlíf, menningu og sögu. Hann heimsækir með annars Vesturfarasetrið á Hofsósi og ræðir við Valgeir Þorvaldsson.
Flutningur næstum fjórðungs þjóðarinnar til Vesturheims hlýtur að teljast stærsti atburður Íslandssögunnar en á þessum tíma flutti tæplega fjórðungur Íslendinga til vesturheims.
Þættirnir eru á dagskrá á sunnudögum kl 20:30 og var fyrsti þátturinn sýndur síðast liðinn sunnudag. Hann má nálgast í „Sarpnum“ á heimasíðu RÚV.