Þakkir frá Blönduósbæ

Göngur og réttir gengu vel fyrir sig fyrir helgi. Fjöldi manns svaraði kalli fjallskilastjóra og var vel mannað á svæðin. Fólk fékk frí í vinnu og nemendur tóku sér frí í skólanum til að hjálpa til. Mikil samstaða og jákvæðni var meðal allra sem tóku þátt.

Sundurdrætti lauk síðla föstudags en betur fór en á horfðist með veðrið um helgina og var haustlægðin ekki eins djúp og spár gerðu ráð fyrir. Blönduósbær þakkar öllum þeim sem lögðu hönd á plóg í smölun og réttum og þá sérstaklega Gauta Jónssyni, fjallskilastjóra.

Takk fyrir frábært starf.

Bæjarstjóri

Fleiri fréttir