Þakkir vegna söfnunar fyrir Pál Þórðarson
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
19.03.2014
kl. 15.50
Í byrjun mars var sett af stað söfnun fyrir Pál Þórðarson og fjölskyldu hans, sem búsett eru á Blönduósi. Palli, sem er í 10. bekk í Blönduskóla, greindist með krabbamein í byrjun árs og er nú í meðferð í Reykjavík.
Samstarfsfólk foreldra hans á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi vill þakka fyrir frábærar undirtektir í söfnuninni og munu þau fá söfnunarféð afhent á næstu dögum. Áfram Palli nagli!