Þarfagreina nám á Norðurlandi vestra
Á vef Þekkingarsetursins á Blönduósi er sagt frá því að setrið hafi farið af stað með þarfagreiningu náms á Norðurlandi vestra. Þarfagreiningin á að varpa ljósi á námsþarfir/námsóskir íbúa á Norðurlandi vestra og þannig vera leiðarvísir fyrir uppbyggingu fjar- og staðnáms á komandi árum.
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vinnur greininguna sem samanstendur af rýnihópum, netkönnun og símakönnun. Verkefnið er viðamikið og mun skila haldgóðum upplýsingum til frekari uppbyggingar á svæðinu. Ekki er vitað til að könnun sem þessi hafi verið framkvæmd í öðrum landshlutum á jafn markvissan hátt og nú er verið að gera. Verkefninu stjórnar Gunnar Tr. Halldórsson.
Þekkingarsetrið myndaði samstarfshóp með Farskólanum-miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra og Vinnumarkaðsráði Norðurlands vestra við forvinnu verkefnisins. Markmiðið með starfshópnum var að fá fulltrúa úr fræðsluumhverfinu og atvinnulífinu til að fá meiri þekkingu inn í forvinnu greiningarinnar.
Er það von Þekkingarsetursins að þátttakendur taki vel á móti spyrlum Félagsvísindastofnunar.