"The Weight of Mountains"
Á morgun, laugardag, verður Pálínuboð (Pot luck lunch) með listamönnum í Neslistamiðstöð að Fjörubraut 8 að Skagaströnd kl. 12:30.Komdu allir! Kvikmyndagerðarmenn sem standa að verkefninu „The Weight of Mountains“, sem stendur yfir í þrjá mánuði (desember, janúar og febrúar) og snýr að stuttmyndagerð.
Verkefnið er kallað – “The Weight of Mountains” – sem felur í sér ákveðið þema fyrir kvikmyndagerðarmennina til að vinna að meðan á dvöl þeirra stendur. Þemað er – Maðurinn og umhverfið: Hvernig mótar nánasta umhverfi okkur sem manneskjur.
Markmiðið með verkefninu – “The Weight of Mountains” – er að hvetja til skapandi þróunarferla. Boðið verður uppá þrjár ráðstefnur meðan á dvöl kvikmyndagerðar-mannanna stendur og til opinna morgunfunda til að hvetja til nánari tengsla við samfélagið.