„Þessi mynd er bara brot af risastórri aðgerð“

Myndina tók Þór Þorsteinsson þegar verið var að ferja mannskap og búnað yfir á í gríðarlegum vexti. Sexhjól með beltabúnaði sem er í eigu björgunarsveitarinnar Grettis á Hofsósi reyndist vel. Hjólið er lengst til hægri á myndinni og var, ásamt mannskap, notað til að brúa ána.
Myndina tók Þór Þorsteinsson þegar verið var að ferja mannskap og búnað yfir á í gríðarlegum vexti. Sexhjól með beltabúnaði sem er í eigu björgunarsveitarinnar Grettis á Hofsósi reyndist vel. Hjólið er lengst til hægri á myndinni og var, ásamt mannskap, notað til að brúa ána.

Fjöldi Skagfirðinga og Húnvetninga tók þátt í leit að rjúpnaskyttum á Snæfellsnesi, sem voru hætt komnar við erfiðar aðstæður þar um helgina. Gríðarlegt vatnsveður skall á, með miklu roki, og höfðust skytturnar við undir stórum steini aðfararnótt sunnudagsins.

Voru mennirnir ágætlega búnir skjólfatnaði en höfðu slökkt á farsímum sínum til að spara rafhlöðurnar, enda utan þjónustusvæðis. Rétt er að vekja athygli á því að hægt er að miða út síma í rúmlega 30 kílómetra radíus frá þyrlu, þrátt fyrir að þeir séu utan þjónustusvæðis, að því er fram kom í Kastljósviðtali við skytturnar og Þór Þorsteinsson, björgunarsveitarmann úr Borgarfirði.

Alls tóku ellefu Björgunarsveitarmenn frá svæði 9, Húnavatnssýslum og þrettán af svæði 10, Skagafirði, þátt í útkallinu. Einn þeirra var Elvar Már Jóhannsson, formaður Björgunarsveitarinnar Grettis á Hofsósi. Feykir hafði samband við Elvar Má og spurði hann fyrst út í sexhjólið sem notað var við aðgerðirnar. „Þetta er sexhjól sem er á beltabúnaði, það gjörbreytir verksviði hjólsins. Það er mun hærra en venjuleg hjól, af því það er á þessum beltum. Þetta hjálpaði mikið við að komast yfir ána og var liður í því að brúa ána,“ segir Elvar og bætir því við að áin hafi verið mun vatnsmeiri en myndir gefa til kynna.

Björgunarsveitin Grettir fékk útkall um klukkan 10 á sunnudagsmorgni og var lagt af stað frá Hofsósi milli kl 10:30 og 11 um morguninn og ekið beint í Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi. Þegar Grettismenn komu á vettvang var búið að finna mennina en átti eftir að koma þeim niður. „Það óx svo svakalega í ánni meðan við vorum þarna, vatnsveðrið var svo svakalegt,“ segir Elvar Már. Hann segir að í það heila hafi um 240 manns tekið þátt í aðgerðinni, við mjög erfiðar aðstæður. Veðrið hafi verið mun verra þar sem mennirnir fundust heldur en þar sem farið var yfir ána. „Þarna var hver leitarmaður mikilvægur, ekki síður en tækið,“ segir Elvar Már að lokum. 

Fleiri fréttir