Þjóðin segir af eða á um Icesave

Ljóst er að þjóðaratkvæðagreiðsla mun fara fram öðru sinni um Icesave-málið eftir að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að synja Icesave lögunum staðfestingar. Alþingi mun í framhaldinu þurfa að koma sér saman um það hvaða dag kosningarnar verða haldnar.

Þegar samningarnir um Icesave voru samþykktir með miklum meirihluta á Alþingi í liðinni viku voru lagðar fram tvær tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna málsins. Þær voru báðar felldar með 33 atkvæðum gegn 30.

Þá bárust forsetanum um 38 þúsund undirskriftir þar sem heitið var á forsetann að synja lagafrumvarpinu staðfestingar yrði það samþykkt á Alþingi og að þjóðin fái að úrskurða um þetta mál.

Og nú er boltinn hjá þjóðinni og líklegt að mörgum þyki talsvert erfiðara að gera upp hug sinn að þessu sinni.

Fleiri fréttir