Þjóðleikur í Fjölbraut

Leiklistarhópur NFNV sýnir verkið Útskriftarferðin á fimmtudagskvöld 16. apríl en þetta er í fyrsta sinn sem Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra tekur þátt í Þjóðleik. Leikstjórn er í höndum Halldórs Ingólfssonar en verkið er eftir Björk Jakobsdóttur og er á léttu nótunum. Sýningin hefst kl. 20:00 á Sal Fjölbrautaskólans.

Þjóðleikur er leiklistarverkefni sem haldið er að frumkvæði Þjóðleikhússins í samstarfi við fjölmarga aðila á landsbyggðinni. Leikverkið sem nú verður sett upp er skrifað er sérstaklega fyrir Þjóðleik og við uppsetninguna hefur Þjóðleikhúsið veitt faglega ráðgjöf um sviðsetningu, sviðstækni og leikstjórn. Leikhópurinn heldur svo á uppskeruhátíð til Egilsstaða og sýnir þar verkið.

Aðeins verður þessi eina sýning. Aðgangur er ókeypis

Fleiri fréttir