Þjónusta VÍS á Blönduósi á fleiri hendur

Um næstu mánaðarmót verða þau tímamót í starfsemi VÍS á Blönduósi að Skarphéðinn Ragnarsson þjónustustjóri lætur af störfum eftir að hafa veitt viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu í tæpan aldarfjórðung. Við það færist þjónustan á fleiri hendur, eins og sagt er frá í dagskrárblaðinu Glugganum.

Í viðtali við Skarphéðinn í síðasta tölublaði Gluggans segir:

„Ég verð 68 ára í sumar og hef þá unnið ári lengur en alla jafna tíðkast hjá VÍS. Nú gefst meiri tími til að sinna öðrum hugðarefnum sem setið hafa á hakanum. Ég veit að mitt fólk fær sem fyrr fyrsta flokks þjónustu. Það má segja að hún færist á fleiri hendur hér núna. Góðvinur minn Sigurbjörn Bogason á Sauðárkróki og Helga Gígja Sigurðardóttir taka við keflinu og sinna hvers kyns erindum Húnvetninga. Gísli Arnór Pálsson sem er mörgum hér að góðu kunnur verður sem fyrr bændafulltrúi á svæðinu. Hann stendur fyrir 200 kinda búi og þekkir landbúnaðinn út og inn. Svo verða tveir Blönduósingar og einn Skagstrendingur til taks heima fyrir þegar á þarf að halda, þannig að við eigum á vísa að róa í heimabyggð,“ segir Skarphéðinn.

Þar vísar hann til Lárusar Jónssonar og Birgis Ingólfssonar á Blönduósi og Ólafs Bernódussonar á Skagaströnd. Birgir mun forskoða bílatjón á svæðinu en Lárus og Ólafur sinna öðrum eignatjónum og áhættuskoðun húseigna.

Magnús Jónsson umdæmisstjóri VÍS á Norðurlandi segir í viðtali í Glugganum kapp lagt á að þjónustan verði áfram snurðulaus þótt Skarphéðinn láti af störfum. „Sexmenningarnir sem að ofan er getið munu leggja sitt af mörkum til að svo verði sem og allir aðrir VÍS-arar. Fyrir hönd VÍS vil ég jafnframt þakka Skarphéðni kærlega fyrir gott samstarf og við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.“

Sigurbjörn tekur undir árnaðaróskirnar með Magnúsi og hlakkar til samstarfsins við Húnvetninga. „Við þekkjum nokkuð vel til í Húnavatnssýslum og hlökkum til að þjóna heimamönnum hér af sömu alúð og Skarphéðinn hefur gert í gegnum tíðina.“

Frá vinstri: Skarphéðinn Ragnarsson, Birgir Ingólfsson, Gísli Arnór Pálsson, Lárus B. Jónsson, Sigurbjörn Bogason og Ólafur Bernódusson.

Fleiri fréttir