Þóra Karen sigrar Hæfileikakeppni starfsbrauta

Fulltrúi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Þóra Karen Valsdóttir, sigraði Hæfileikakeppni starfsbrauta í gærkvöldi með flutningi sínum á laginu Stay with me. Fimmtán skólar tóku þátt í keppninni  sem haldin var í Fjölbrautaskóla Garðabæjar.

Dómnefndina skipuðu tveir Pollapönkarar; Haraldur, rauði pollinn og Heiðar, blái pollinn þeim til fulltingis var söngkonan Sigríður Eyrún, sem var þátttakandi í undankeppni Eurovision 2014.

Fulltrúi Fjölbrautaskólans í Breiðholti var í öðru sæti og tveir skólar hrepptu þriðja sætið, Flensborg og Fjölbrautaskólinn í Ármúla.

Á vef FNV segir að Þóra Karen sé ánægð með sigurinn og fannst henni frábært að taka þátt í keppninni. Samnemendur hennar og starfsmenn FNV á starfsbraut hvöttu hana óspart í salnum en níu nemendur tóku sér ferð á hendur að fylgjast með framgöngu hennar í keppninni.

Fleiri fréttir