Þórarinn Eymundsson sigurvegari KS-Deildarinnar 2015
Lokakeppni KS-Deildarinnar fór fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum í gærkvöldi. Það var Þórarinn Eymundsson, í liði Hrímnis, sem stóð uppi sem sigurvegari en þetta er annað árið í röð sem Þórarinn vinnur deildina.
Keppt var í slaktaumatölti og skeiði á lokamótinu. Það var Fanney Dögg Indriðadóttir sem sigraði keppni í slaktaumatölti á hryssunni Brúney frá Grafarkoti. Samkvæmt facebook-síðu KS-Deildarinnar áttu þær frábærar sýningar bæði í forkeppni og úrslitum. Elvar Einarsson og Segull frá Halldórsstöðum sigruðu skeiðið. Sigurvegari B-úrslita var Bjarni Jónasson og Roði frá Garði.
A-Úrslit
1.Fanney Dögg & Brúney frá Grafarkoti - 7,83
2-3.Þórarinn Eymundsson & Taktur frá Varmalæk - 7,46
2-3.Teitur Árnason & Hreimur frá Kvistum - 7,46
4 Bjarni Jónasson & Roði frá Garði - 7,0
5.Líney María & Völsungur frá Húsavík - 6,67
B-Úrslit
Bjarni Jónasson og Roði frá Garði - 7,33
Mette Mannseth og Hnokki frá Þúfum - 6,96
Baldvin Ari og Lipurtá frá Hóli 6,96
Hanna Rún og Nótt frá Sörlatungu - 6,83
Tryggvi Björnsson og Hlynur frá Haukatungu- 6,38