Þórdís Eva hlaut 2. verðlaun í smásagnakeppni FEKÍ
Nemandi við Húnavallaskóla hlaut 2. verðlaun í sínum aldursflokki í smásagnakeppni fyrir grunn- og framhaldsskóla sem Félag enskukennara á Íslandi efndi til í tengslum við Evrópska tungumáladaginn. Keppt er í fjórum aldurshópum: 6. bekkur og yngri, 7.-8. bekkur, 9. – 10. bekkur og framhaldsskóli.
Húnavallaskóli sendi inn eina sögu í ár og var þemað að þessu sinni „Blue“. „Við erum ákaflega stolt að segja frá því að Þórdís Eva Einarsdóttir nemandi í 7. bekk hlaut 2. verðlaun í sínum aldursflokki fyrir söguna sína „The boat Trip“,“ segir á heimasíðu skólans.
Verðlaun voru afhent við hátíðlega athöfn í bandaríska sendiráðinu mánudaginn 10. mars en Bandaríska sendiráðið, Bókaútgáfan Salka og Rósakot bækur eru styrktaraðilar keppninnar.