Þórdísarganga á Spákonufell
Menningarfélagið Spákonuarfur ætlar að bjóða upp á Þórdísargöngu á Spákonufell á Kántrýdögum, laugardaginn 18. ágúst. Mæting er við golfskálann að Háagerði kl. 10 og þaðan verður lagt af stað í gönguna.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Spákonuarfi verður fararstjóri ferðarinnar göngugarpurinn Halldór Ólafsson og mun hann segja sögur af Þórdísi spákonu og öðru skemmtilegu.
Að lokinni göngu verður boðið uppá kaffihlaðborð í golfskálanum sem er innifalið í þátttökugjaldi sem er kr. 2.500.- Frítt fyrir yngri en 16 ára.
Nánari upplýsingar í síma 861 5089.