Þórdísarganga á Spákonufell föstudaginn 3. júlí kl. 21
Menningarfélagið Spákonuarfur á Skagaströnd stendur fyrir göngu á Spákonufell n.k. föstudagskvöld. Á síðasta ári voru farnar tvær Þórdísargöngur á Spákonufell sem tókust mjög vel og voru þátttakendur alls um 150.
Fararstjóri er að vanda, sagnamaðurinn Ólafur Bernódusson. Hann segir frá Þórdísi Spákonu og bendir á staði sem tengjast sögu hennar.
Mæting er við Golfskálann að Háagerði. Að lokinni göngu verður boðið upp á nátthressingu sem er innifalin í þátttökugjaldinu sem er 1500 kr., ókeypis er fyrir yngri en 16 ára.
Frekari upplýsingar gefnar í síma 8615089

