Þorleifur leiðir A-listann í Húnavatnshreppi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Sveitarstjórnarkosningar
27.04.2014
kl. 15.30
A-listi – Listi framtíðar í Húnavatnshreppi býður sig fram fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fara fram þann 31. maí næstkomandi. Þorleifur Ingvarsson, bóndi á Sólheimum skipar fyrsta sæti listans. Í öðru sæti er Sigrún Hauksdóttir, bóndi á Brekku og í þriðja sæti er Jón Gíslason, bóndi á Stóra-Búrfelli.
A-listi – Listi framtíðar er eftirfarandi:
- Þorleifur Ingvarsson Bóndi Sólheimum
- Sigrún Hauksdóttir Bóndi/bókari Brekku
- Jón Gíslason Bóndi Stóra-Búrfelli
- Jóhanna Magnúsdóttir Bóndi Ártúnum
- Pálmi Gunnarsson Tónlistark./viðskiptafr. Akri
- Berglind Hlín Baldursdóttir Sérkennari Miðhúsum
- Rúnar Aðalbjörn Pétursson Húsasmíðanemi Hólabæ
- Guðrún Sigurjónsdóttir Skólaliði/bóndi Auðkúlu 2
- Hjálmar Ólafsson Forritari Kárdalstungu
- Ásmundur Óskar Einarsson Búfræðinemi Grænuhlíð
- Björn Benedikt Sigurðarson Háskólanemi Guðlaugsstöðum
- Egill Herbertsson Bóndi Haukagili
- Fanney Magnúsdóttir Bóndi Eyvindarstöðum
- Björn Magnússon Bóndi Hólabaki
A-listinn hefur opnað Facebook síðu og má sjá hana hér.