Þorrablót Vöku er á laugardaginn
Húni segir frá því að hið árlega Þorrablót Kvenfélagsins Vöku verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi næstkomandi laugardag, 22. janúar. Húsið opnað klukkan 19:30 og borðhald hefst stundvíslega klukkan 20:30. Eins og svo oft áður sér Leikfélag Blönduóss um glens og grín.
Hljómsveitin Allt í Einu sér um undirleik fjöldasöngs og leikur fyrir dansi af lífi og sál fram á rauða nótt.
Miðasala verður í félagsheimilinu fimmtudaginn 20. janúar frá kl. 17:00 til kl.19:00
Því miður er enginn posi. Miðaverð kr. 5.500. Elli- og örorkulífeyrisþegar ásamt unglingum fæddum árið 1995 greiða kr. 4.500.
Nú gildir að vera þjóðlegur og skella sér á heimsklassa þorrablót Vökukvenna
