Þorrablótsstemningin við völd - Myndband

Undanfarnar vikur hefur Feykir birt myndir og frásagnir af þorrablótum vítt og breytt um Norðurland vestra. Þorrablót á svæðinu eru vel á annan tuginn og ætla má að fjöldi gesta á þeim skipti þúsundum. Því er um að ræða stóran þátt í menningarlífi svæðisins, enda er einhver alveg sérstök stemning sem fylgir þessum samkomum.

Slíkri stemningu verður ágætlega lýst með meðfylgjandi myndbandi sem fengið er af fésbókarsíðu Menningarhússins Miðgarðs, en þar var þorrablót fyrrum Seyluhrepps haldið fyrir rúmlega viku síðan. Þar taka gestir hressilega undir í hinu ódauðlega lagi „Ég er kominn heim.“

http://youtu.be/pCYEIY8CJUE

Fleiri fréttir