Þórsstofa í Kvennaskólanum á Blönduósi

Kvennaskólinn á Blönduósi hefur fengið afhent skjöl, bækur, muni og myndir að gjöf frá Þóri Jakobssyni veðurfræðingi, sem honum hefur áskotnast á löngum starfsferli sínum innanlands og utan.

Fram kemur í fundargerð Blönduóssbæjar frá því í morgun að verið er að hanna fundar- og vinnusal í Kvennaskólanum, undir leiðsögn Jóns Þórissonar leikmyndahönnuðs sem mun bera heitið „Þórsstofa-Íshafsleiðin til Kína.“ Þór og Jóhanna Jóhannesdóttir, kona hans, hafa jafnfram gefið 500.000 kr. til uppbyggingar stofunnar og ber bæjarráð Blönduóss þeim þakkir fyrir slíka höfðinglega gjöf.

Fleiri fréttir