Þristurinn í kvöld

Á síðu frjálsíþróttadeildar UMSS segir frá því að Þristurinn, frjálsíþróttakeppni unglinga úr UMSS, USAH og USVH, fyrir 14 ára og yngri, fer fram í kvöld fimmtudaginn 11. ágúst á frjálsíþróttavellinum við Reykjaskóla og hefst keppnin kl, 17.

Búast má við spennandi keppni. Skagfirðingar hafa sigrað tvö síðustu árin, en Húnvetningar hafa verið að sækja í sig veðrið í sumar, og stóðu sig mjög vel á ULM 2011 á Egilsstöðum.

Fleiri fréttir