Þrjú verkefni á Norðurlandi vestra fengu styrki
Þrjú verkefni á Norðurlandi vestra fengu úthlutað úr Pokasjóði verslunarinnar í gær en það voru Grettistak á Hvammstanga, Kvenfélagið Iðja í Miðfirði og Skógræktarfélag Skagastrandar. Alls voru tæplega 71 milljón króna úthlutaðar til 82 verkefna á sviði umhverfismála, menningar, mannúðar, íþrótta og útivistar um allt land.
„Stuðningur við verkefni fyrir börn og unglinga er áberandi við úthlutun Pokasjóðs að þessu sinni, en samtals er 20 milljónum króna úthlutað til fjölbreyttra úrræða á því sviði. Styrkir til umhverfismála nema tæpum 38 milljónum króna. Frá upphafi hefur Pokasjóður úthlutað um 1.300 milljónum króna,“ segir í fréttatilkynningu frá Pokasjóði.
Grettistak á Hvammstanga fékk úthlutaðar 200.000 kr. til þess að gera merkingar gönguleiða um Löngufit. Kvenfélagið Iðja í Miðfirði fékk 200.000 kr. til að annast gróðursetningu í Ásdísarlundi. Skógræktarfélag Skagastrandar fékk 750.000 kr. til að leggja göngustíga um skógrækt félagsins.
Hæstu styrki Pokasjóðs að þessu sinni hlutu Landgræðslufélag Biskupstungna, 5 millj. kr. fyrir verkefnið: Uppgræðsla og stöðvun jarðvegseyðingar á Haukadalsheiði. Þorgrímur Þráinsson, mannrækt fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla 2012-2013. Og Olweusáætlunin, eineltisáætlun fyrir grunnskóla og leikskóla, 3 millj. kr., fyrir verkefnið: Vímulaus æska, sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir börn og unglinga.
Að Pokasjóði standa 160 verslanir um land allt, matvöruverslanir, vínbúðir og sérvöruverslanir. Pokasjóður fær tekjur sínar af sölu plastburðarpoka í þessum verslunum. Formaður stjórnar Pokasjóðs er Bjarni Finnsson.