Þú kemst þinn veg er gestasýning LA í október
Leikfélag Akureyrar laðar að gestasýningar á hverju leiksári sem auka fjölbreytni, dýpka leikhúsupplifun og auðga leikhúslíf hér norðan heiða. Í tilkynningu frá leikhúsinu segir að nýlokið sé sýningum á Hún pabbi í Samkomuhúsinu og voru viðtökurnar frábærar og sýningin vel sótt. Þann 15. október verður tekið á móti Þú kemst þinn veg sem er frelsandi og fyndin heimildarsýning sem veitir einstaka innsýn í lífsbaráttu manns með geðsjúkdóm.
Í kynningu segir að leikverkið Þú kemst þinn veg byggi á sögu Garðars Sölva Helgasonar sem glímir við geðklofa en tekst á við erfiðleikana á einstakan og heillandi hátt með umbunakerfi sem hann hefur tileinkað sér. Verkið veitir einstaka innsýn í lífsbaráttu manns með geðsjúkdóm. Batann og bakslögin, líf á ofsahraða og líf einn dag í einu.
Í leikverkinu er fylgst með persónunni Guðmanni halda fyrirlestur um Garðar Sölva besta vin sinn og umbunakerfið hans. Fyrirlesturinn tekur heldur óvænta stefnu og þróast ekki beint eins og Guðmann ætlar sér. Allt gengur á afturfótunum, einföldustu hlutir verða flóknir og Guðmann strögglar við að leysa málin. Á köflum brýst leikhúsið inní verkið líkt og ranghugmynd og það skásta sem Guðmanni dettur í hug að gera til að fela stressið er að „detta í" að segja eins og eina sögu inná milli þess sem hann ætlar sér að byrja fyrirlesturinn.